{"product_id":"nattaro-scout-veggjalusagildra","title":"Nattaro Scout veggjalúsagildra 2 sett","description":"\u003cp data-pm-slice=\"1 3 []\"\u003eVirk gildra til að fylgjast með veggjalúsum með náttúrulegu ferómóni sem laðar að skordýrin. Notuð til að staðfesta grun eða ganga úr skugga um að engin virkni sé í herbergi. Hentar bæði fyrir heimili og faglegt umhverfi og er auðvelt að koma fyrir við rúm og aðra hvíldarstaði.\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eVerðlaunuð – áhrifarík eftirlitsgildra\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eFerómónbeita með langan endingartíma – allt að 4 vikur\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eEiturlaus og örugg til notkunar í svefnherbergjum\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cp\u003eEndurnýtanleg með útskiptanlegum beitum\u003c\/p\u003e\n\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eNattaro Scout veggjalúsagildra fyrir örugga greiningu á veggjalús\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eNattaro Scout er fagleg veggjalúsagildra sem er hönnuð til að greina fljótt hvort veggjalýs séu til staðar í umhverfinu. Náttúruleg lyktarbeita líkir eftir eigin ferómónum veggjalúsa og laðar þær inn í gildruna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eGildran er látlaus og fellur vel inn í heimilisumhverfi en gefur jafnframt skýra vísbendingu um hvort veggjalýs séu til staðar á svæðinu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eHentar bæði til heimilisnota og faglegrar notkunar\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eNattaro Scout er notuð á heimilum, hótelum, skólum, í fasteignum og á öðrum stöðum þar sem grunur leikur á veggjalús.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eGildran er sérstaklega gagnleg við eftirfarandi aðstæður:\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul data-spread=\"false\"\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eÞegar grunur leikur á veggjalús og staðfesta þarf hvort hún sé til staðar.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eEftir aðgerðir gegn veggjalús til að fylgjast með hvort virkni sé enn til staðar.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eSem hluti af reglubundnu vöktunar- og eftirlitskerfi á áhættusvæðum s.s. á gististöðum.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eEiginleikar\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cul data-spread=\"false\"\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eInniheldur lyktarbeitu sem er sérstaklega þróuð fyrir veggjalýs.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eLangur endingartími. Lyktarbeitan virkar í allt að fjórar vikur.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eEiturefnalaus og lyktarlaus fyrir fólk og því örugg til notkunar í svefnherbergjum.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eEndurnýtanleg gildra með útskiptanlegri lyktarbeitu.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eLátlaus og einföld í uppsetningu.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eNotkunarleiðbeiningar\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eKomið gildrunum rétt fyrir\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKomið gildrunni fyrir nálægt rúminu, gjarnan við rúmfætur eða á milli dýnu og rúmgrindar. Mælt er með að nota tvær gildrur við hvert rúm til að tryggja sem besta vöktun.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eLátið gildrurnar standa óhreyfðar\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eVeggjalýs eru aðallega virkar að næturlagi og geta þurft tíma til að finna gildruna. Forðist því að færa gildrurnar á meðan þær eru í notkun.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eSkoðið gildrurnar reglulega\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eSkoðið gildrurnar vikulega til að athuga hvort veggjalýs hafi fest í þeim. Skoðið bæði utanvert og innanvert byrgi gildrunnar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eEf veggjalús finnst\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eSetjið gildruna í lokaðan plastpoka og geymið hana í frysti við að minnsta kosti -18 °C í að minnsta kosti 48 klukkustundir áður en henni er fargað eða hún meðhöndluð frekar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch3\u003e\u003cspan\u003eSkiptið um lyktarbeitu eftir þörfum\u003c\/span\u003e\u003c\/h3\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eSkipta skal um lyktarbeituna eftir fjórar vikur til að viðhalda virkni gildrunnar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eRáð fyrir árangursríkari vöktun\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cul data-spread=\"false\"\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eNotið gildruna ásamt veggjalúsaheldum hlífðaráklæðum fyrir dýnur til að fækka mögulegum felustöðum veggjalúsa.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eTakið gildru með í ferðatöskunni þegar gist er á hótelum til að auka öryggi og auðvelda vöktun.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eVeggjalýs skilja oft eftir sig litla svarta punkta, sem eru saurblettir, og blóðbletti á rúmfötum. Fylgist einnig með þessum ummerkjum samhliða notkun gildrunnar.\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eVaran er ekki sæfivara.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Nattaro Labs","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":48623206105280,"sku":null,"price":6900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0743\/8791\/4944\/files\/Scout-NF-2-2-pack.jpg?v=1784203757","url":"https:\/\/varnir.is\/products\/nattaro-scout-veggjalusagildra","provider":"Varnir","version":"1.0","type":"link"}