Hvernig losna ég við geitunga?
Geitungar eru mest áberandi síðsumars þegar búin eru orðin stór. Ein drottning stofnar búið á vorin og það stækkar yfir sumarið, oft í þakköntum, undir pallinum, í runnum eða í holum í jörðinni.
Geitungar á pallinum
Ef geitungar sækja í mat og drykk úti er gott að hengja upp geitungagildru í nokkurra metra fjarlægð frá borðinu, svo hún dragi þá frá fólkinu. Rafflugnaspaði hentar fyrir einstaka geitung.
Geitungabú við húsið
Lítið bú sem auðvelt er að komast að má meðhöndla með Geitungabananum, sem úðar úr fjarlægð. Hafðu þetta í huga:
- Úðaðu seint á kvöldin eða snemma morguns, þegar geitungarnir eru heima og hægari.
- Vertu í síðerma fötum og með hanska, og hafðu greiða undankomuleið.
- Úðaðu beint í opið á búinu og farðu svo frá. Láttu búið vera í einn til tvo daga áður en þú fjarlægir það.
Ef búið er stórt, erfitt að komast að eða inni í vegg, eða ef einhver á heimilinu er með ofnæmi fyrir stungum, skaltu fá meindýraeyði.
Algengar spurningar
Hvenær er best að eyða geitungabúi?
Sem fyrst, á meðan búið er lítið. Því lengra sem líður á sumarið, því fleiri geitungar eru í búinu.
Koma geitungarnir aftur í sama búið?
Nei. Gömul bú eru ekki notuð aftur, en ný drottning getur byggt nýtt bú á sama stað næsta vor.