Nattaro Scout veggjalúsagildra 2 sett

Virk gildra til að fylgjast með veggjalúsum með náttúrulegu ferómóni sem laðar að skordýrin. Notuð til að staðfesta grun eða ganga úr skugga um að engin virkni sé í herbergi. Hentar bæði fyrir heimili og faglegt umhverfi og er auðvelt að koma fyrir við rúm og aðra hvíldarstaði.

  • Verðlaunuð – áhrifarík eftirlitsgildra

  • Ferómónbeita með langan endingartíma – allt að 4 vikur

  • Eiturlaus og örugg til notkunar í svefnherbergjum

  • Endurnýtanleg með útskiptanlegum beitum

Nattaro Scout veggjalúsagildra fyrir örugga greiningu á veggjalús

Nattaro Scout er fagleg veggjalúsagildra sem er hönnuð til að greina fljótt hvort veggjalýs séu til staðar í umhverfinu. Náttúruleg lyktarbeita líkir eftir eigin ferómónum veggjalúsa og laðar þær inn í gildruna.

Gildran er látlaus og fellur vel inn í heimilisumhverfi en gefur jafnframt skýra vísbendingu um hvort veggjalýs séu til staðar á svæðinu.

Hentar bæði til heimilisnota og faglegrar notkunar

Nattaro Scout er notuð á heimilum, hótelum, skólum, í fasteignum og á öðrum stöðum þar sem grunur leikur á veggjalús.

Gildran er sérstaklega gagnleg við eftirfarandi aðstæður:

  • Þegar grunur leikur á veggjalús og staðfesta þarf hvort hún sé til staðar.
  • Eftir aðgerðir gegn veggjalús til að fylgjast með hvort virkni sé enn til staðar.
  • Sem hluti af reglubundnu vöktunar- og eftirlitskerfi á áhættusvæðum s.s. á gististöðum.

Eiginleikar

  • Inniheldur lyktarbeitu sem er sérstaklega þróuð fyrir veggjalýs.
  • Langur endingartími. Lyktarbeitan virkar í allt að fjórar vikur.
  • Eiturefnalaus og lyktarlaus fyrir fólk og því örugg til notkunar í svefnherbergjum.
  • Endurnýtanleg gildra með útskiptanlegri lyktarbeitu.
  • Látlaus og einföld í uppsetningu.

Notkunarleiðbeiningar

Komið gildrunum rétt fyrir

Komið gildrunni fyrir nálægt rúminu, gjarnan við rúmfætur eða á milli dýnu og rúmgrindar. Mælt er með að nota tvær gildrur við hvert rúm til að tryggja sem besta vöktun.

Látið gildrurnar standa óhreyfðar

Veggjalýs eru aðallega virkar að næturlagi og geta þurft tíma til að finna gildruna. Forðist því að færa gildrurnar á meðan þær eru í notkun.

Skoðið gildrurnar reglulega

Skoðið gildrurnar vikulega til að athuga hvort veggjalýs hafi fest í þeim. Skoðið bæði utanvert og innanvert byrgi gildrunnar.

Ef veggjalús finnst

Setjið gildruna í lokaðan plastpoka og geymið hana í frysti við að minnsta kosti -18 °C í að minnsta kosti 48 klukkustundir áður en henni er fargað eða hún meðhöndluð frekar.

Skiptið um lyktarbeitu eftir þörfum

Skipta skal um lyktarbeituna eftir fjórar vikur til að viðhalda virkni gildrunnar.

Ráð fyrir árangursríkari vöktun

  • Notið gildruna ásamt veggjalúsaheldum hlífðaráklæðum fyrir dýnur til að fækka mögulegum felustöðum veggjalúsa.
  • Takið gildru með í ferðatöskunni þegar gist er á hótelum til að auka öryggi og auðvelda vöktun.
  • Veggjalýs skilja oft eftir sig litla svarta punkta, sem eru saurblettir, og blóðbletti á rúmfötum. Fylgist einnig með þessum ummerkjum samhliða notkun gildrunnar.

Varan er ekki sæfivara.

6.900 kr.
Tilboðsverð  6.900 kr. Almennt verð 
Nattaro Scout veggjalúsagildra 2 sett

Tengdar vörur