Biopren 4 GR Plus lirfueitur 5 kg
Biopren 4 GR Plus er tilbúið kyrni til varnar gegn flugulirfum og lirfum drítbjalla í gripahúsum. Varan inniheldur vaxtarstýringarefnið S-metópren sem kemur í veg fyrir að lirfur þroskist eðlilega yfir í fullorðnar flugur og bjöllur.
Efnið verkar gegn lirfum húsflugu, stingflugu, sveifflugu og dritbjöllu. Það hefur hins vegar ekki áhrif á fullorðnar flugur eða bjöllur. Með reglulegri og réttri notkun dregur Biopren 4 GR Plus verulega úr fjölda nýklakinna fullorðinna skordýra. Hæg losun virka efnisins veitir langvarandi virkni og getur komið í veg fyrir uppkomu flugna og drítbjalla í allt að 12 vikur.
Varan er ætluð til notkunar í lokuðum svínastíum, fjósum, alifuglahúsum og öðrum gripahúsum þar sem lirfur þroskast í mykju, driti eða lífrænum undirburði. BIOPREN 4 GR Plus er tilbúið til notkunar og er dreift beint á yfirborðið, til dæmis með handvirkum korndreifara.
Notkun og skammtar
Dreifið Biopren 4 GR Plus jafnt yfir yfirborð mykju, drits eða lífræns undirburðar.
Skammtur: 30 g á hvern m²
Meðhöndla skal allt viðkomandi yfirborð. Ekki nægir að dreifa efninu eingöngu á afmarkaða bletti.
Svínastíur og nautgripahús
Rimlagólf
Dreyfið efninu á þriðja degi eftir að nýtt búfé er komið inn í húsið. Meðhöndlið allt yfirborð mykju eða drits sem safnast hefur upp undir rimlagólfinu.
Endurtakið meðhöndlunina eftir að hvert nýtt lag af ferskri mykju eða driti hefur náð um 8 til 10 cm þykkt.
Djúpur undirburður
Dreyfið Biopren 4 GR Plus á hvert nýtt lag af undirburði eða driti. Endurtakið meðhöndlunina fyrir hvert nýtt lag sem er um 8 til 10 cm að þykkt.
Alifuglahús
Búr
Meðhöndlið uppsafnað drit undir búrunum. Endurtakið meðhöndlunina eftir að hvert nýtt lag hefur náð um 10 cm þykkt.
Djúpur undirburður
Dreyfið efninu á hvert nýtt lag af undirburði eða driti. Endurtakið meðhöndlunina eftir hvert nýtt 10 cm lag.
Hvenær skal hefja meðhöndlun?
Ráðlagt er að dreyfa Biopren 4 GR Plus á ferska mykju eða drit innan þriggja daga frá því að búfé er sett inn í húsið. Síðan skal endurtaka meðhöndlunina eftir því sem ný lög af mykju, driti eða undirburði myndast.
Gætið þess að ekki sé ómeðhöndluð mykja eða drit sýnilegt á meðhöndlaða svæðinu. Rétt tímasetning er mikilvæg þar sem efnið verkar á lirfustig skordýranna en ekki á fullorðnar flugur eða bjöllur.
Meðhöndlun á þurrri mykju
Ef mykjan eða dritið er mjög þurrt getur tekið lengri tíma fyrir efnið að virkjast.
Til að flýta fyrir virkni má úða 100 til 200 ml af vatni á hvern m² fyrir eða eftir að Biopren 4 GR Plus er dreift.
Mykja sem geymd er utandyra
Nota má Biopren 4 GR Plus á mykju sem geymd er utandyra, að því gefnu að hún sé geymd í lekaheldu og einangruðu íláti eða safnþró.
Geymslustaðurinn skal vera að minnsta kosti 15 metra frá gripahúsum. Dreifið 30 g/m² jafnt yfir hvert nýtt lag af mykju sem er um 10 cm að þykkt.
Hætta skal meðhöndlun mykjunnar að minnsta kosti tveimur mánuðum áður en henni er dreift. Á þeim tíma er ráðlagt að verja mykjuna gegn nýrri ásókn flugna, til dæmis með yfirbreiðslu.
Umbúðastærð: 5 kg
Virkt efni: S-metópren 4 g/kg, 0,4%
Vöruform: Kyrni, tilbúið til notkunar