Lift Revive Drops grasáburður
Lift Revive Drops er lífrænn steinefnaáburður sem er sérstaklega hannaður til að endurnýja grasflötina eftir slátt . Áburðurinn minnkar álag á grasið, styrkir rótarkerfið og örvar niðurbrot á sinu. Formúlan hamlar vöxt á illgresi og bætir byggingu jarðvegsins, sem gerir efnið einstaklega hentugt fyrir flöt sem sleginn er með róbótasláttuvélum .
Hvers vegna ættir þú að velja Lift Revive Drops?
- Grænni og þéttari flötur: Inniheldur járn (iron chelate) sem stuðlar að djúpgrænum lit og þéttum vexti ásamt því að hamla illgresi.
- Hraðar niðurbroti: Styður við niðurbrot á grasklippi og dregur úr þjöppun í jarðveginum, sem er fullkomið fyrir vélmennaslátt.
- Heldur raka og næringu: Bætt með virkum kolum (activated charcoal) sem hjálpa jarðveginum að halda vel í raka og næringarefni.
- Einföld notkun: Þynnið 100 ml í 10 lítra af vatni fyrir 10 m² svæði. Mælt er með notkun tvisvar á ári (t.d. maí og ágúst), en varist að bera á í beinni sól.
3.990 kr.
Tilboðsverð
3.990 kr.
Almennt verð